WiFi gátt sem tengir MiBoxer / Mi-Light 2.4G stýringar og ljós við símann. Með henni er hægt að stjórna lýsingunni í Tuya Smart appinu og með raddstýringu. Uppfærð útgáfa af WL-Box1.
Eiginleikar
- Stjórnun í Tuya Smart appi, hvar sem er
- Styður raddstýringu þriðja aðila (t.d. Alexa og Google)
- Virkar með MiBoxer / Mi-Light 2.4G stýringum, ljósum og dimmerum
- Allt að 100 svæði (zones) sem hægt er að nefna
- Tímastillingar og sjálfvirkni
- Getur afritað fjarstýringu sem er þegar pöruð
- Knúin með USB-C (5V)
Athugið: Gáttin tengist aðeins 2.4GHz WiFi neti.










Tæknilegar upplýsingar
| Gerð | WL-Box2 |
| Inntak | DC5V / 500mA (USB-C) |
| Samskipti | 2.4GHz RF + WiFi 802.11b/g/n (2.4GHz) |
| Drægni (RF) | 30 m |
| Vinnuhitastig | -10 til 40°C |