Skilmálar

Með því að fara inn á vefsvæðið samþykkir þú sem notandi þessar reglur og skilmála.

Seljandi er Leds ehf., kennitala: 680824-0530, virðisaukaskattsnúmer 154068. Leds ehf. er skráð í Firmaskrá Íslands. Kaupandi er sá aðili sem er skráður kaupandi á reikning.

Almennt

LEDS.IS áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. 

 

Afhending vöru

Allar vörur eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum er dreift af starfsmönnum LEDS.IS eða Póstinum og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu vörunnar. LEDS.IS ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi á vegum Póstsins.

 

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Rafræn kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við leds@leds.is með spurningar.

 

Verð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. 

 

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK. 

 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

 

 Meðhöndlun vöru

Kaupandi skal alltaf vera meðvitaður við notkun vörunnar og ekki skilja þau eftir í gangi að ástæðulausu. Forðast skal að hafa tækin gangandi mörgum dögum saman vegna þess að slík notkun gæti haft skaðleg áhrif á tækið.