Lítill 230V Triac dimmer frá MiBoxer sem er tengdur á einn vír (engin núlltaug nauðsynleg) og passar í rofadós. Fyrir glóperur, halógen og dimmanlegar LED perur, allt að 300W.
Eiginleikar
- Einvíra tenging: hentar þar sem engin núlltaug er í rofadósinni
- Flöktlaus dimming 0–100%, stillanleg lágmarksbirta
- Afturskurðar (trailing edge) fasadimming með yfirálagsvörn
- Virkar með MiBoxer 2.4GHz fjarstýringum og veggrofum (t.d. K0, K3, Y1, PUSH3), drægni 30 m
- Tuya Smart app og raddstýring (Alexa, Google Assistant) með 2.4G gátt (t.d. WiFi box)
- Áframsendir merki fjarstýringar í næsta tæki til að auka drægni
Athugið: Hentar ekki beint fyrir 230V LED borða.




Tæknilegar upplýsingar
| Gerð | TRI-K2 |
| Inntaksspenna | 200–240V AC 50Hz |
| Útgangsstraumur | Mest 1,36A |
| Hámarksafl | 300W við 230V |
| Samskipti | 2.4GHz RF |
| Drægni | 30 m |
| Vatnsheldni | IP20 |
| Vinnuhitastig | −10 til 40°C |
| Vottanir | CE, EMC, LVD, RED |